frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég veit ekki hvort þetta frumvarp muni eitt og sér hafa miklar breytingar í för með sér varðandi það sem hv. þingmaður nefnir. Ég held samt að þetta sé einmitt gott tilefni til að staldra við og hugsa aðeins um öryggismenninguna hér á landi, hugsa um það hvernig við nálgumst þessi nýju verkfæri eins og skýjaþjónustu eða bara þær miklu tengingar sem eru í boði. Mér finnst oft og tíðum að við innleiðingu á stafrænum lausnum þá séu íslensk stjórnvöld ekki alltaf nógu varkár.
Ég ætla að taka hérna dæmi sem er kannski örlítið á ská varðandi rafræn skilríki — stórkostleg lausn til að tryggja fullt traust í rafrænum samskiptum, mikilvægt að hafa til að geta auðkennt sig inn í fasteignakaup eða bara þar sem skiptir mestu máli að það sé 100% öruggt að þú sért sá sem þú segist vera. En það sem við höfum gert er að ríkið, Stafrænt Ísland, apparatið sem hefði betur verið tæknistjóri með skýrt umboð, það er búið að útbúa lausn til almennrar auðkenningar sem er svo ódýr og aðgengileg og þægileg í notkun að það er búið að stinga henni inn í aðgangsstýringu á allan fjandann. Við notum rafrænu skilríkin til að panta okkur „hot yoga“ í ræktinni, til að framlengja bókasafnsbók. Við rífum rafrænu skilríkin upp í tíma og ótíma sem verður til þess að allur almenningur er útsettari fyrir netsvindli, (Forseti hringir.) vegna þess að okkur finnst ekkert alvörumál að taka upp símann (Forseti hringir.) og auðkenna okkur. Þar með er hætta á því að þessi traustþjónusta snúist upp í andhverfu sína.