154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:25]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er einmitt mjög gott dæmi hjá hv. þingmanni og leiðir hugann að þessari öryggismenningu eða öryggisómenningu þegar við innleiðum hluti. Við erum auðvitað að einhverju leyti nýjungagjörn þegar kemur að nýrri tækni og viljum innleiða hana sem fyrst. Það getur verið gott en fólk sést ekki alltaf fyrir í því. Það er nú svo langt síðan að hér voru innleiddar kennitölur og þeim var ekki ætlað að vera notaðar eins og þá var en það var ekki hægt að leigja vídeóspólur — nú veit ég ekki hvort einhverjir í salnum muna eftir þeim — öðruvísi en að gefa kennitölu. Nú er þetta orðið sambærilegt með rafrænu skilríkin.

Mig langaði hins vegar í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann nánar út í hugmynd Pírata um tæknistjóra. Ég held að þar hafi kannski farið fram hjá þingheimi gott mál sem hefði getað sett ákveðin viðmið og skilyrði fyrir innleiðingu öryggismenningar (Forseti hringir.) sem við þyrftum að koma okkur upp.