154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:26]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Varðandi tillögu Pírata að tæknistjóra ríkisins þá held ég einmitt að þar hafi þingið misst af gullnu tækifæri til að vera skrefi á undan þróuninni. Þetta er svo gott dæmi um það hvernig góðar hugmyndir eru stundum útvatnaðar í flýtinum sem skapast í kringum þinglok, vegna þess að það sem hefði orðið öflugur einstakur embættismaður með breitt umboð til að hafa jákvæð áhrif á allt stjórnkerfið varð að einhverju „letters“ bréfi frá þinginu til skrifstofu í fjármálaráðuneytinu sem var hvort eð er að vinna þessi mál. Þetta varð mögulega til þess að efla þá vinnu sem er í gangi innan Stafræns Íslands en ég held að við hefðum haft gott af því að lyfta þeirri vinnu upp og hefja hana aðeins út úr sílóunum sem ráðuneytin starfa í.

En það stoðar víst lítið (Forseti hringir.) að gráta orðinn hlut. Við getum hins vegar kannski notað tækifærið núna (Forseti hringir.) og spýtt dálítið í lófana varðandi gagnastefnu fyrir Ísland sem ég nefndi hér í ræðu minni.