154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:44]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna sína. Mig langar að gera tilraun til að skjóta smá meiri glufu inn í þetta mál og útskýra út á hvað það gengur eiginlega, vegna þess að ég held að það sé mjög mikilvægt sem hv. þingmaður kemur hingað inn með, þ.e. hversu ógagnsætt mikið af þessu regluverki sem við erum að innleiða frá Evrópusambandinu raunverulega er og hversu lítil umræða og hversu litlar upplýsingar í raun fylgja með í þessum málum. Þingmenn eru því almennt frekar illa upplýstir um hvað það er sem þeir eru að samþykkja þegar þeir eru að samþykkja gerðir.

Við erum einmitt með þessi ský sem hv. þingmaður talaði um. Þessi ský eru samt ekki bara einhvern veginn til einhvers staðar í einhverjum algeimi. Þau byggja á gagnaverum sem eru staðsett á einhverjum ákveðnum stað og þurfa þá að fylgja ákveðnum reglum um hvernig gögnin sem komið er fyrir á því skýi eru vernduð. Það eru misjafnar kröfur gerðar gagnvart því t.d. hvort þú megir geyma ákveðin gögn á skýi í Bandaríkjunum þar sem reglur um vernd persónuupplýsinga eru t.d. með öðrum hætti heldur en þær eru í Evrópusambandinu. Þegar kemur að mjög viðkvæmum persónuupplýsingum þá geta verið ákveðnar takmarkanir á því hvar þú mátt geyma þær, hvort þú megir geyma þær á ákveðnu skýi, t.d. skýi í Bandaríkjunum. Það er ekkert rosalega mikið til af svona skýjum sem eru í Evrópu, ótrúlegt en satt.

Þessi ópersónugreinanlegu gögn tengjast sem sagt ekki þessum viðkvæmu persónuupplýsingum en þau geta verið mjög verðmæt gögn þar sem er búið að setja á einhver lagaskilyrði um að það megi ekki geyma þau á þessu skýi heldur bara á einhverju öðru skýi. Það er verið að reyna að kljúfa í gegnum þetta reglugerðarfargan og segja: Gögn sem eru öllum gagnleg, það má ekki takmarka á hvaða skýjum má geyma þau (Forseti hringir.) ef það snertir þetta fjórfrelsi.

Ég veit að ég gerði ekkert rosalega vel í að skýra þetta fyrir hv. þingmanni en þetta var nú bara byrjunin.