154. löggjafarþing — 116. fundur,  4. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[23:48]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það er auðvitað ekki einfalt að lesa sig í gegnum svona gerðir. En það sem er átt við með að þetta nái bara undir efnissvið EES-samningsins er að þetta fjallar bara um gögn í því samhengi. Sem sagt, ef þú ert með gögn sem þú ætlar að nota fyrir viðskipti eða gögn sem þú ætlar að nota til þess að styðja við fjármálagerninga o.s.frv., ef þetta fellur undir þau málefnasvið sem EES-samningurinn nær utan um þá gildir þetta um þau gögn sem tengjast því. Það er í raun það sem er verið að eiga við, enda getur EES-samningurinn illa reglað neitt nema það sem fellur undir gildissvið EES-samningsins. Það er bara verið að taka það fram aftur í raun að EES-samningurinn og valdið sem Evrópusambandið hefur til að setja okkur reglur eða láta okkur innleiða reglur snýr bara að gildissviði EES-samningsins og ekki að einhverju sem er utan þess, eins og t.d. öryggi ríkisins sem er eitthvað sem fellur utan við það.

Hvað varðar það hvers konar gögn þetta eru þá er auðvitað alltaf rosalega mikilvægt að taka konkret dæmi. Það skortir svolítið í greinargerðinni. Það skortir í nefndarálitinu líka að vera með skýr dæmi sem hjálpa fólki að skilja hvað er eiginlega átt við með ópersónugreinanlegum gögnum og gagnasettum. Það sem við gætum t.d. verið að tala um væru landfræðileg gögn sem gengu út á hvar skógur er, hvar landeigind er, hvar þetta og hitt er, þróun mála, veðurfræðileg gögn og önnur gögn sem væri hægt að nýta í viðskiptafræðilegum eða rannsóknarlegum tilgangi eða alls konar tilgangi en eru kannski einhverjar hömlur á út af regluverki í einhverju ákveðnu ríki innan EES.

Hér er verið að segja yfir allt EES-svæðið: Tökum þessar hindranir niður þannig að allir geti notið góðs af þessum gögnum sem geta verið mjög verðmæt fyrir fyrirtæki, stofnanir, einstaklinga o.s.frv. við rannsóknir, við viðskipti, við að þróa hugbúnað eða (Forseti hringir.) einhverja fyrirtækjahugmynd eða eitthvað álíka. Fellum niður hindranirnar þannig að við getum öll notið góðs af upplýsingum.