frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Nú þakka ég hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur hjartanlega fyrir nákvæmlega þetta, vegna þess að þarna var hún með rúsínuna í pylsuendanum sem opnaði endanlega allar flóðgáttir minnar visku. Ég veit nákvæmlega um hvað hv. þingmaður er að ræða hér og ég get ekki betur séð, miðað við það sem hv. þingmaður segir, að við séum bara virkilega blessuð af því að vera að fara að innleiða þetta regluverk og a.m.k. samræma þá þessa hluti innan Evrópska efnahagssvæðisins þannig að það séu ekki þröskuldar hér og hvar, eins og ég vísaði áðan í þegar ég var að lesa upp úr greinargerðinni, að við fellum niður þröskulda og séum þá bara á sama stað með sömu möguleika, sömu tækifæri og það sé í rauninni ekkert land sem er í þessum samningum með okkur sem getur hindrað það.
Mér þótti líka mjög gaman áðan að heyra — hann er nú einstaklega lunkinn við að koma með dæmi, hv. þm. Andrés Ingi Jónsson eins og hann gerði hérna áðan þegar hann var að tala um auðkennið okkar og hvernig það væri. Hvort sem við erum að fara á heilsuvera.is eða island.is eða bara inn á heimabankana okkar eigum við að geta treyst því að gögnin um okkur séu vistuð, séu geymd, séu örugg og allt það.
Það að eiga þetta samtal, að við séum að tala um þetta, finnst mér að við ættum að gera svo miklu oftar um svo miklu fleiri mál. Mjög mörg mál fara í gegnum þingið án þess að það fáist svona upplýsandi og frábær umræða eins og t.d. þetta mál hefur fengið hér í dag. Þannig að ég verð að segja að ég þakka enn fyrir þetta, hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir. Ég er viskunni vísari og ég held ég geti gengið voðalega glöð inn í nóttina miðað við alla þá visku sem hefur verið pakkað inn í dag.