154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

breyting á starfsáætlun.

[15:01]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti hefur ákveðið, að höfðu samráði við forsætisnefnd og formenn þingflokka, að gera þær breytingar á starfsáætlun Alþingis að föstudagurinn 7. júní verði nefndadagur en sá dagur átti að vera þingfundadagur samkvæmt starfsáætlun.