154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

Störf þingsins.

[15:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Ég ræddi um daginn við forsætisráðherra um þann viðvarandi hallarekstur sem hann sjálfur ber hvað mesta ábyrgð á síðustu árin. Ný fjármálaáætlun fær falleinkunn frá atvinnulífinu, frá fjármálaráði og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Það er að hægjast á efnahagslífinu og greiðslubyrði lána venjulegra heimila er að þyngjast verulega. Yfirdráttarlán upp á 17% eru tekin sem aldrei fyrr, dulin vanskil. Landsframleiðsla dróst saman um 4% á fyrsta ársfjórðungi og er útlit fyrir lítinn hagvöxt. Það blasir við núna eitraður kokteill samdráttar og mikillar verðbólgu.

Ný ríkisstjórn byrjaði á því að segjast ætla að leggja áherslu á þrjú mál. Eitt af þeim var verðbólgan, eðlilega, enda blasir við að það er langstærsta hagsmunamál þjóðarinnar, venjulegs fólks, millitekjuhópsins, að ná niður vöxtum og verðbólgu, hópsins sem alltaf ber á endanum þyngstu byrðarnar. Forsætisráðherra hafði reyndar ekki sömu áhyggjur og ég af stöðunni og sagði þetta klassíska: Sjáið þið ekki veisluna, jaríjaríjarí? Hann sagði jafnframt þessi orð nokkurn veginn að það væri í lagi að ríkissjóður væri rekinn tímabundið með halla og það ætti líka að skapa hagvöxt. Mér fannst þetta vera áhugaverð túlkun. Í fyrsta lagi er tíu ára samfelldur hallarekstur tímabundinn að mati forsætisráðherra. Mér finnst það frekar bera vott um misheppnaða hagstjórn eða þá metnaðarleysi. Ég vil líka geta þess að það eru ekki miklar vonir bundnar við það samkvæmt greiningaraðilum að við sjáum fram á aukinn hagvöxt. Það er ljóst að það er þungskýjað og þá er vont, virðulegi forseti, fyrir þjóðarbúið að vera með ríkisstjórn sem er búin, þar sem ósætti setur þing, þjóð og samfélag í algjöra kyrrstöðu, þar sem ekki er ráðist í verkin. Ég segi bara: Það má kannski binda vonir við það að það eina sem þau geti komið sér saman um í ríkisstjórninni sé að láta gott heita og slíta þessu samstarfi. Guð láti nú gott á vita.