Störf þingsins.
Herra forseti. Það er verulega áhugavert að fylgjast með ríkisstjórnarflokkunum reyna af veikum mætti að halda þessu stjórnarsamstarfi gangandi nú eftir forsetakosningarnar. Það ríkir fullkomin óvissa um framgang stórra mála hérna í þinginu vegna þess að flokkarnir koma sér ekki saman um það sem á að klára. Það sem er þó merkilegast af öllu er að Vinstrihreyfingin – grænt framboð virðist vera búin að fatta að hreyfingin er til vinstri. Formaður flokksins og þingmenn taka nú skýra afstöðu gegn Sjálfstæðisflokknum í hverju málinu á fætur öðru. Formaður flokksins vill fara, með leyfi forseta, „vel til vinstri“ og augljóst er nú að það á að taka sér stöðu gegn frumvarpi dómsmálaráðherra um breytingar á lögreglulögum. Það segir sig sjálft að stjórnarsamstarf sem gengur út á gagnkvæmt neitunarvald flokkanna er ekki sjálfbært fyrir þjóðina. Það á ekki alltaf að enda þannig að stjórnarflokkarnir stöðvi mál hvers annars, algerlega óháð því hvort þingmeirihluti sé fyrir þeim eða ekki. Þetta er ávísun á áframhaldandi kyrrstöðu.
Á þetta höfum við í Viðreisn oft bent. Það er skýr þingmeirihluti fyrir því að auka orkuframleiðslu í landinu til að bregðast við orkuskorti og neitunarvald eins stjórnarflokkanna á ekki að koma í veg fyrir það. Það er ekki ólíklegt að það sé meiri hluti fyrir því í þinginu að fjölga lögreglumönnum, efla löggæslu og grípa til aðgerða gegn skipulagðri brotastarfsemi og hryðjuverkaógn þótt einn stjórnarflokkanna sé mögulega á móti því. Viðreisn vill leggja sitt af mörkum til að ná því máli í gegn, bæði til að efla löggæslu í landinu og efla öryggi borgaranna en ekki síður til að tryggja eftirlit með þeim valdheimildum sem beitt er. Rétt eins og í orkumálum er Viðreisn til í samtal við aðra flokka á þingi, óháð víglínum stjórnar og stjórnarandstöðu, um þau mál sem brýnt er að samþykkja áður en þingi er slitið. (Forseti hringir.) Sú pattstaða sem hér er uppi vegna ósættis innan stjórnarliðsins vinnur gegn hagsmunum almennings. Ein leið út úr því er ofur einfaldlega að láta reyna á (Forseti hringir.) hver vilji þingsins er, óháð því hvað einstaka stjórnarflokkum kann að finnast.