154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

Störf þingsins.

[15:14]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf):

Herra forseti. Þegar þingið kom saman eftir jólaleyfi hófst þingfundur á umræðu um málefni Grindavíkur. Ráðherrar og þingmenn í öllum flokkum töluðu einum rómi um hvað þyrfti að gera fyrir Grindvíkinga. Fyrst og fremst þyrfti að losa fólkið undan fjárhagsbyrðum og óþarfaáhyggjum og gæta að því að börnin fái fast land undir fætur með öryggi og rútínu skólagöngu og tómstunda. Þegar þjóð stendur frammi fyrir samfélagsverkefni af þeirri stærðargráðu sem við Íslendingar höfum gert undanfarið er farsælast að leysa það í þverpólitískri sátt og samstarfi. Það var settur á laggirnar einn þverpólitískur hópur til að undirbúa fasteignafélagið Þórkötlu. Það var mikilvægt að koma því félagi á koppinn hratt og vel en við vissum að mælistikan sem hönnuð var með þeim lögum gæti ekki dugað fyrir alla. Stjórnarflokkarnir lofuðu að þeim sem ekki fengju lausn sinna mála yrði mætt síðar en það bólar ekkert á slíkum lausnum. Einstaklingarnir þurfa að standa skil á lánum og skuldbindingum og mörg þeirra eru komin í veruleg vandræði. Á þeim frumvörpum sem við ræddum í gær má skilja að ekki verði meira gert í stuðningi við Grindvíkinga. Annað frumvarpið var um framlengingu rekstrarstyrkja og húsnæðisstuðnings út árið ásamt framlengingu á stuðningi til fyrirtækja til að greiða laun starfsmanna út ágústmánuð. Hitt málið er um afurðasjóð ef tjón verður á matvælum og fóðri í næstu hamförum og er ekki ætlað að bæta tjón sem þegar hefur orðið. Ráðherrar og þingmenn þvert á flokka hafa lýst því yfir að þau vilji taka höndum saman og leggja fram lausnir sem duga fyrir fólkið, fyrirtækin og samfélagið í Grindavík. (Forseti hringir.) Þrátt fyrir það liggja ekki fyrir lausnir sem duga fyrir alla. Ég spyr, forseti: Á virkilega að láta hóp Grindvíkinga sitja uppi með stórkostlegt tjón eftir hamfarirnar?