154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

Störf þingsins.

[15:17]
Horfa

Eva Dögg Davíðsdóttir (Vg):

Herra forseti. Mannréttindi snerta okkur öll. Mannréttindareglur Sameinuðu þjóðanna eru bæði alþjóðlegar og algildar og full virðing mannréttinda er á ábyrgð samfélagsins alls. Samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var fullgiltur hérlendis árið 2016. Markmið samningsins er að tryggja öllu fötluðu fólki mannréttindi til jafns við aðra, banna hvers kyns mismunun á grundvelli fötlunar og efla og tryggja mannlega reisn og virðingu þeirra sem lifa við fötlun. Samningurinn kveður enn fremur á um að sjálfstæð innlend mannréttindastofnun sem uppfyllir viðmið Parísarsáttmálans um hlutverk, stöðu og starfsemi sé starfandi til að sinna eftirlitshlutverki með samningnum. Slík stofnun er því í raun skilyrði þess að hægt sé að lögfesta samninginn hérlendis.

En mannréttindastofnanir sinna ekki bara réttindum fólks með fötlun heldur gegna þær lykilhlutverki þegar kemur að því að efla og vernda mannréttindi. Mannréttindastofnunum er ætlað að vera tenging milli stjórnvalda og félagasamtaka og eru þannig mikilvægur hluti þess að tengja og samræma réttindi einstaklinga annars vegar og skyldur ríkisins hins vegar. Slíkar stofnanir eru starfræktar á öllum hinum Norðurlöndunum og er Ísland í hópi aðeins fimm Evrópulanda þar sem slík stofnun er ekki starfrækt en nú verður loks breyting á því. Með stofnun mannréttindastofnunar á Íslandi leggjum við ýmis mannréttindi til grundvallar, svo sem bann við mismunun, rétt til lífs, bann við þrældómi og nauðungarvinnu, rétt til frelsis og mannhelgi, rétt til réttlátrar málsmeðferðar, friðhelgi einkalífs og einkaréttar, trúfrelsi, tjáningarfrelsi, rétt til menntunar, ferðafrelsi, rétt til heilsuverndar og til félagslegrar aðstoðar og svona mætti lengi áfram telja.

Virðulegi forseti. Það er langt síðan samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks var fullgiltur á Íslandi. Nú er kominn tími til að lögfesta hann. Með stofnun sjálfstæðrar mannréttindastofnunar er það markmið loksins innan seilingar.