Störf þingsins.
Hæstv. forseti. Mig langar að nota þetta tækifæri og ræða hér um textíl- og fatasóun. 12. heimsmarkmiðið fjallar um ábyrga neyslu og ábyrga framleiðslu. Það varðar fataframleiðslu rétt eins og alla aðra framleiðslu í heiminum. Fyrir liggur að hver einasti íbúi þessa lands hendir að meðaltali u.þ.b. 20 kílóum af fatnaði og skóm á hverju ári. Eitthvað af þessu ratar í fatagáma Rauða krossins eða annarra samtaka. Sumt gerir það ekki og víðfrægir eru fatahaugarnir á ströndum Afríku þar sem offramleiðslu og ofneyslu Vesturlandabúa hefur verið bókstaflega dömpað í fangið á fátækasta fólki í heimi.
Það vekur líka athygli að kaupgleði Íslendinga á sér lítil takmörk. Núna nýtum við netið sem aldrei fyrr. Mér skilst að þriðjungur fatakaupa sé gerður á netinu. Það kallar líka á hraðan flutning á milli landa. Hraðtískan eða skynditískan veldur því líka að það er offramleiðsla og ofneysla á fatnaði hvert sem litið er og lítið er rætt um það að 9% losunar gróðurhúsalofttegunda í heiminum koma frá textíliðnaði. Svo er að sjálfsögðu líka á þessu stóra máli jafnréttisvinkill, vegna þess að við upphaf virðiskeðjunnar eru það konur, og börn reyndar því miður, sem framleiða fatnaðinn í stórum stíl og við enda hennar eru það einnig konur sem sjá um kaupin og reyndar líka ráðstöfunina þegar þeim lýkur.
Mig langaði til að nota tækifærið á þessum fallega sumardegi til að vekja athygli okkar allra á þessu. Þetta er hluti af umhverfismálum og þeirri umhverfisvernd sem við þurfum að huga að sem samfélag. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)