154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

Störf þingsins.

[15:26]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P):

Herra forseti. Það var gaman að fylgjast með forsetakosningum um helgina. Þær höfðu allt sem við sem höfum áhuga á stjórnmálum viljum sjá. Það voru frambærilegir frambjóðendur, það var spenna, það voru sviptingar í skoðanakönnunum og á endanum fengum við afgerandi kosningu þar sem Halla Tómasdóttir fékk skýrt umboð til að vera forseti Íslands. En það sem mér fannst einna skemmtilegast við þessar kosningar var þátttakan. 81% kosningaþátttaka er stórkostlegur árangur og þetta er árangur sem náðist vegna þess að ungt fólk varð virkt í kosningunum. Ungu fólki var ekki sama um það sem hægt var að velja um á kjörstað á laugardaginn. Þau mættu í massavís og komu sinni skoðun skýrt á framfæri.

Ég sat fund Landssambands ungmennafélaga í Iðnó snemma í kosningabaráttunni og sá þar fjóra af toppframbjóðendum lýsa skoðun sinni á ýmsum málum. Eitt var alveg skýrt hjá þeim: Þau vildu raunverulegt samtal við ungt fólk. Þau vildu lækkun kosningaaldurs. Þau vildu gera samfélagið betra með því að draga ungt fólk að borðinu og hlusta á það í alvöru. Þess vegna held ég að það sé engin tilviljun að þetta unga fólk skilaði sér á kjörstað. Þetta er eitthvað sem við þurfum að vinna áfram með. Mig langar að minna forseta á þá dýrðardaga fyrir sex árum þegar við ræddum hér í 3. umræðu frumvarp mitt um lækkun kosningaaldurs. Við vorum hársbreidd frá því að lækka kosningaaldur í sveitarstjórnarkosningum niður í 16 ár. Við þurfum að taka þennan þráð upp aftur og vera öll saman í því, þessu réttlætismáli sem það er að víkka út kosningarréttinn til að gera stjórnmálin skemmtilegri og samfélagið betra. Tíminn til þess er eftir sumarið. Förum saman í þetta næsta vetur; lækkum kosningaaldur niður í 16 ár, samfélaginu til bóta.