154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

Störf þingsins.

[15:28]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Forseti. Með leyfi forseta: „Jafnt og frjálst aðgengi allra til náms er ein af grundvallarstoðum framsækins og réttláts samfélags.“ Svona hefst umsögn Röskvu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um Menntasjóð námsmanna.

Það er alveg ljóst að markmið laga um Menntasjóð námsmanna, að tryggja stúdentum jöfn tækifæri til náms án tillits til efnahags eða stöðu, hefur ekki náðst. Framfærslan er allt of lág til að ná endum saman og vegna þess neyðast allt, allt of margir stúdentar til að vinna með námi. Námslánakerfið átti til að byrja með að vera félagslegt jöfnunartæki en kerfinu hefur verið snúið upp í andhverfu sína. Það tekur enginn lán hjá sjóðnum nema honum standi engar aðrar lausnir til boða. Lausnin átti svo að vera að setja á fót styrkjakerfi til að styðja nemendur í að sækja nám eftir eigin höfði og stuðla þannig að því að fleiri nemendur lykju námi. Lausn háskólamálaráðherra mátti samt augljóslega ekki kosta of mikinn pening og urðu styrkirnir þess vegna of lágir og voru látnir miðast við framvindu náms, sem þýðir að ef stúdentar lenda í skakkaföllum og ná ekki tilsettum námsárangri þá fá þeir ekki styrk. En ekki bara það, heldur þurfa þeir að greiða lánin sem þeir fengu greidd út fyrir fram strax til baka. Annars fá þeir ekki áframhaldandi námslán.

Í stað þess að fjárfesta í menntun er búið að skapa endalausar hindranir fyrir nemendur í þeim tilgangi að verja kerfið og spara pening. En sparnaðurinn er til þess fallinn að koma í veg fyrir að styrkjakerfið nýtist þeim sem mest þurfa á því að halda, þeim sem standa höllum fæti, og þess sparnaðar sem kostar kerfið margfalt meira til framtíðar.

Forseti. Ég ætla að gera lokaorð Röskvu í fyrrnefndri umsögn að mínum eigin, með leyfi forseta:

„Fjárhagsstaða íslenskra stúdenta er með því versta sem gerist í Evrópu, stærstur hluti þeirra neyðist til þess að vinna með námi, andleg heilsa þeirra er af þeim sökum slæm og álag mikið. Námsframvinda í íslenskum háskólum er mun minni en æskilegt er. Óskiljanlegar tafir hafa orðið á nauðsynlegum aðgerðum í málaflokknum.“