Störf þingsins.
Virðulegi forseti. Störf þingsins hafa tekið á sig hefðbundna tafaleiki þar sem minni hlutinn í þinginu heldur dagskrá þess í gíslingu og hvorki gengur né rekur á vinnustaðnum. En það er ekki bara við minni hlutann að sakast. Ég hef verið 11 ár á þingi og allan þann tíma tilheyrt meiri hlutanum, sem aldrei hefur klárað lista yfir þinglokamál sem eru forsenda þinglokasamninga og koma í veg fyrir málþóf. Þetta er því árleg pattstaða, störukeppni um hvort við erum að sinna vinnunni okkar eða ekki.
Virðulegi forseti. Hefðbundið málþóf er því mein sem við öll í þinginu berum fulla ábyrgð á, líka ég. Þessi árlegi, vondi bragur á þinghaldinu, málþóf fyrir öll þinghlé, er ljóður á ráði annars vinnusamra þingmanna allra flokka.
Virðulegi forseti. Það hefur verið lærdómsríkt að sitja í stól sem fjórði þingforseti. Það er t.d. mjög merkilegt að nær undantekningarlaust tala þingmenn út þann tíma sem þeir fá í umræðum. Jafnvel þótt þeir hafi löngu lokið af sér að ræða viðkomandi mál fara þeir í hringsól um eigin hugðarefni og lífsreynslu sem engum kemur sérstaklega við í þingsalnum og alls ekki þeim 30.000 sem sitja heima við sjónvarpið og fylgjast með. Ræðukóngar í erlendum þingum tala í 10% af tíma ræðukóngs á Alþingi Íslendinga. Þá er það ræðutíminn, virðulegur forseti, sem þvælist fyrir mörgum þingmönnum. Of margir þingmenn taka sér lengri ræðutíma en þingsköp gera ráð fyrir. Það er ósanngjarnt gagnvart þeim sem virða takmarkaðan ræðutíma. Þá er kvartað yfir því að áminning forseta, með því að slá í bjölluna, trufli ræðumanninn og þeir sem heima sitja heyri ekki hvað sagt er. Ræðumenn geta lagað þetta með því að virða ræðutímann og engin bjalla glymur.
Virðulegi forseti. Ef við öll sýnum störfum þingsins meiri virðingu gætum við hætt að skammast okkar fyrir reglulegt málþóf og þeir sem sitja heima ná öllum ræðunum því að þá mun sjaldnar heyrast í bjöllunni. Hættum málþófi. Vinnum saman. Virðum þingsköpin. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)