154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

Störf þingsins.

[15:33]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Síðustu ár hefur atvinnulífið verið að kalla eftir iðnmenntuðu starfsfólki. Samfélagið hefur tekið miklum breytingum og atvinnulífið kallar á iðnmenntað starfsfólk. Á ferðum mínum um kjördæmið hef ég heyrt frá fjölda fyrirtækja sem hafa næg verkefni en skortir tilfinnanlega iðnmenntað starfsfólk. Í morgun las ég frétt um það að metfjöldi nemenda taki nú sveinspróf í múrverki við Tækniskólann og að aukin jákvæðni sé í garð iðnnáms. Það hefur ekki alltaf verið raunin. Sífellt fleiri nemendur koma nú beint úr grunnskóla í iðnnám og það er vel. Það er greinilegt að aðgerðir sem miða að því að efla iðnnám eru að bera árangur. Í ljósi stóraukinnar ásóknar í verknám hefur Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, sett stækkun verk- og starfsmenntaskóla um allt land í forgang á þessu kjörtímabili. Í tíð Lilju Alfreðsdóttur sem menntamálaráðherra var farið í átak til að auka aðsókn í verk- og starfsnám. Það átak fór fram úr okkar björtustu vonum. Þessari auknu ásókn hafa þó vissulega fylgt vaxtarverkir og hafna hefur þurft hundruðum umsækjenda vegna plássleysis. Þeirri þróun á nú að snúa við. Nú þegar liggur fyrir samkomulag um kostnaðarskiptingu milli ríkis og viðkomandi sveitarfélaga til að ráðist verði í stækkun Fjölbrautaskólans í Breiðholti, Menntaskólans á Ísafirði, Fjölbrautaskóla Suðurnesja ásamt Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Verkmenntaskólanum á Akureyri. Til viðbótar verður ráðist í slíka samningagerð við Fjölbrautaskóla Suðurlands, Borgarholtsskóla og Verkmenntaskóla Austurlands og stefnt er á að viðbygging við alla þessa skóla komist í framkvæmdafasa á þessu kjörtímabili. Þessu til viðbótar stendur til að byggðar verði nýjar höfuðstöðvar Tækniskólans í Hafnarfirði.

Virðulegi forseti. Það er ánægjulegt að þetta átak hafi tekist svo vel eins og raun ber vitni. Ég segi: Vel gert.