154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[15:48]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég tel að þessi aðferð við að innleiða lög með þessum hætti sé dæmd til að falla. Þetta er svona skemmri skírn. Áhrifin eru þau — segjum að erlendir aðilar ætli að stofna gagnaver til að geyma, varðveita og jafnvel vinna ópersónugreinanleg gögn. Þeir fara að skoða lagarammann og sjá að Ísland hefur innleitt þessa löggjöf með tilvísunaðferð. Hvað er það eiginlega? Þá sjá þeir að lagaramminn er ekki nægilega traustur sem þýðir að þeir forðast að koma hingað. Ég tel gríðarlega mikla hagsmuni fólgna í því og gríðarlega mikil tækifæri að vista ópersónugreinanleg gögn eins og persónugreinanleg. Við eigum mikið undir því að frjálst flæði á innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins sé algerlega frjálst og að við séum með regluverk sem sé algjörlega í toppklassa hvað það varðar. Svo er ekki í þessari löggjöf núna.

Ég veit til þess að á Blönduósi er gagnaver sem er gríðarlega orkufrekt. Við gætum verið með mikla hlutfallslega yfirburði þegar kemur að gagnaverum, vegna þess að við getum boðið upp á ódýra orku en samt á miklu hærra verði en til álvera. Það er mikil samkeppni hjá fyrirtækjum að reisa gagnaver sem eru drifin áfram á grænni orku. Það virðist vera að við séum ekki að hugsa um þetta, að við ætlum ekki að vera þátttakendur í gagnahagkerfinu með því að hafa reglur sem eru nægilega vel innleiddar, reglur sem síðasta framkvæmdastjórn Evrópusambandsins undir Jean-Claude Juncker frá Lúxemborg setti í algjöran forgang. Þær fjölluðu um stafræna innri markaðinn. (Forseti hringir.) Við börðumst fyrir því að komast inn á innri markaðinn fyrir 30 árum síðan en það virðist vera að við ætlum ekki að taka þátt í stafræna innri markaðnum, sem er framtíðin.