frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegur forseti. Ég verð nú að byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir hans ræðu hér og þá umræðu sem hefur verið um málið frá því í gær og þá sérstaklega í gærkvöldi þegar þingmenn komu hér upp í pontu og tjáðu sig um þetta mál, sem er þegar maður fer að ná utan um þetta mjög áhugavert. Þegar maður heyrir orðalagið stafrænn innri markaður kveikir það á einhverjum perum, að þetta gæti hugsanlega verið af hinu góða fyrir okkur. Mér fannst ég heyra það á hv. þingmanni að við værum ekki alveg að gera þetta eins og best verður á kosið. Ég myndi kannski vilja biðja hv. þingmann um að skýra það betur fyrir mér og okkur hvernig hann telur að við séum að gera þetta á annan hátt heldur en við gætum gert. Umræðan í gær snerist að mörgu leyti m.a. um gullhúðun og heimild til að gullhúða hluti, sé það til þess fallið að auka réttindi. En spurningin er þá þessi: Með þessari innleiðingu eins og við erum að setja hana fram þarna, erum við að auka réttindi eða erum við að skerða réttindi? Ef við værum að gera það þá erum við náttúrlega alls ekki að innleiða þetta rétt og erum ekki að uppfylla þau skilyrði sem innleiðing slíkra gerða gerir ráð fyrir. Mig vantar aðeins meira kjöt á beinin og fá að heyra frá hv. þingmanni hvernig hann metur þessa innleiðingu. Það er greinilegt af orðum hv. þingmanns að hann hefur kynnt sér málið verulega þannig að ég óska eftir því að hv. þingmaður skýri þetta betur út fyrir (Forseti hringir.) manni eins og mér sem þekkir málið tiltölulega lítið.