154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[15:58]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar. Eins og ég segi eru þetta flókin mál að mínu mati, að ná utan um þetta, og kannski enn þá flóknari vegna þess að við sitjum ekki við borðið þegar verið er að semja slíka hluti. Mér finnst einhvern veginn þegar ég hlusta á hv. þingmann honum vera áfram um að þessir hlutir verði rétt gerðir hér á landi, sem ég styð auðvitað heils hugar. En mér finnst ég á köflum hafa upplifað það að Flokkur fólksins hafi setið hjá þegar innleiðingar á gerðum frá Evrópusambandinu eða Evrópska efnahagssvæðinu hafa verið hér á dagskrá þingsins.

Mig langar því að spyrja hv. þingmann: Hefur honum snúist hugur? Er hann kominn í lið með okkur í Viðreisn um að við drífum okkur bara þarna inn og förum að sitja við borðið?