frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinna andsvar. Ég er ekki andstæðingur EES-samningsins, ég er ekki andstæðingur þess að við tökum þátt í innri markaði Evrópska efnahagssvæðisins, alls ekki. Ég tel hins vegar að EES-samningurinn sé í hættu vegna þess að við höfum ekki verið að gæta hagsmuna innan EES-samningsins. Við höfum ekki verið að stöðva löggjöf eins og raforkuviðskipti yfir landamæri þegar við erum ekki með nein raforkuviðskipti yfir landamæri. Við verðum að passa upp á hagsmuni okkar innan EES-samningsins. Það erum við ekki að gera og ef við getum ekki einu sinni staðið vörð um hagsmuni okkar innan EES þá munum við alveg örugglega ekki geta gert það innan ESB, það eru algerlega hreinar línur. Okkur gefst kostur á því t.d. að taka þátt í sérfræðinganefndum í EES-samstarfinu og við erum þar með Norðmönnum en við höfum ekki gert það nægjanlega. Við höfum ekki gætt hagsmuna okkar t.d. varðandi loftslagsskattana, við flugið og siglingar. Það hefur hins vegar ríki sem heitir Spánn gert og þeir eru með sérreglur fyrir Kanaríeyjar. En hvað var sagt við okkur? Jú, heyrið þið, þið fáið sömu reglur og Malta og Kýpur. (Forseti hringir.) Við erum eyja í Norður-Atlantshafi og svipað langt frá meginlandi Evrópu (Forseti hringir.) og Kanarí, jafnvel lengra frá. Við þurfum að gæta hagsmuna okkar (Forseti hringir.) sem eyja í Norður-Atlantshafi og það erum við ekki að gera. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)