154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[16:01]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða ræðu. Hv. þingmaður nefndi nokkrum sinnum, bæði aðeins fyrr nú og í gær, að það gætu orðið mistök í innleiðingu á svona reglugerðum. Það er einmitt m.a. það sem hin fræga bókun 35 fjallar um, þ.e. að ef við innleiðum vitlaust í íslensk lög þá gildir samt erlenda reglugerðin. Mér heyrðist það aðeins á hv. þingmanni í gær að hann væri jafnvel ánægður með bókun 35 en mér hafði fundist áður hann frekar vera mjög á móti þeirri bókun þannig að mig langar að heyra hver stefna þingmanns og kannski Flokks fólksins er þegar kemur að bókun 35. Teljið þið hana vera góða eða slæma? Og ef hún er góð, eigum við þá ekki að reyna að innleiða hana sem fyrst? Eða ef hún er vond, ætlar þá hv. þingmaður að gera allt í sínu valdi til að stoppa hana hérna innan þingsins þegar hún kemur í haust? Hæstv. utanríkisráðherra hefur tilkynnt að þetta verði eitt af fyrstu málunum sem lagt verður fram á næsta hausti. Það verður slegist um það að fá að vera í utanríkismálanefnd, ég get sagt það, til að taka þátt í þessari skemmtilegu umræðu sem verður þar um. Það væri mjög ánægjulegt að heyra álit hv. þingmanns á bókun 35.