frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Bókun 35 brýtur í bága við stjórnarskrána. Bókun 35 takmarkar löggjafarvald Alþingis til framtíðar. Bókun 35 er þannig að þegar innleidd reglugerð sem sett er í íslensk lög frá Brussel verður að almennum lögum munu almenn lög sem eiga uppruna sinn í Brussel vera rétthærri en önnur almenn lög. Við erum því komin með tvo flokka af almennum lögum, annars vegar almenn lög sem eiga uppruna sinn í Brussel og hins vegar almenn lög sem eiga uppruna sinn á Alþingi Íslendinga og í íslensku samfélagi. Þetta brýtur gegn stjórnarskránni. Það eru algerlega klárar línur. Ef þú ætlar að búa til rétthærri flokk innan almennra laga þá verður þú að gera það í stjórnarskránni. Og þetta er ekki lögskýring, þetta er val á því hvað er rétthærri réttarheimild. Stjórnarskráin er rétthærri almennum lögum. Innan flokksins almenn lög er verið að búa til rétthærri flokk sem eru lög sem eiga uppruna sinn í Brussel. Það gengur gegn stjórnarskránni og ég tel að þetta sé algjörlega til óþurftar.
Íslendingar hafa verið aðilar að Evrópska efnahagssvæðinu í 30 ár og það hefur gengið vel. Það eru allir sammála um að það hafi gengið vel. Það var gengið frá þessu vandamáli. Þetta vandamál var afgreitt fyrir 30 árum síðan. Árið 1993 var samið um það að við myndum sættast á að nota 3. gr. laganna um Evrópska efnahagssvæðið þar sem er talað um að við ætlum að túlka íslensk lög í samræmi við EES-samninginn. Það var gert og ég fullyrði það að ef það hefði átt að lögfesta bókun 35 fyrir rúmum 30 árum síðan þá hefði Alþingi Íslendinga ekki samþykkt EES-samninginn. Það eru algjörlega hreinar línur með það. Ég tel að þingmenn Sjálfstæðisflokksins, a.m.k. að hluta til, hefðu ekki sætt sig við bókun 35 vegna þess að hún takmarkar löggjafarvald Alþingis og brýtur þannig gegn stjórnarskránni og þar með fullveldinu.