154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[16:05]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mikla ræðu hér í andsvari. Það kemur mér samt á óvart að það sem hv. þingmaður segir gengur algerlega í berhögg við það sem flestir lögskýrendur hafa gefið upp og brýtur í bága við nýlegan hæstaréttardóm sem bendir á að þetta þurfi að framkvæma, að þetta þurfi að gerast. Þannig að mig langar að spyrja í seinna andsvari hvort hv. þingmaður telji ekki að þetta breyti einhverju, sérstaklega nýlegasti dómurinn, og ítreka aftur spurninguna um hvort hv. þingmaður ætli að reyna að standa í vegi fyrir því að þetta verði samþykkt.