154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[16:06]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég mun reyna mitt besta sem einn af 63 þingmönnum á Alþingi Íslendinga til að standa í vegi fyrir því að bókun 35 verði lögfest. Flokkur minn mun einnig gera það og ég vona að fleiri flokkar geri það líka, svo það sé algjörlega á hreinu.

Varðandi fæðingarorlofsdóminn frá Hæstarétti þá var hann ekki að segja að við ættum að lögleiða bókun 35. Hann segir það hreint og klárt að þetta snúist um konu sem er með starfsreynslu erlendis og fær það ekki metið við greiðslu fæðingarorlofs. Ég hef sjálfur lent í því, svo það liggi fyrir. Þeir vitna í lög þar sem er verið að segja að sum lög gangi framar. Það er alþjóðlegt bókhald, þá ganga alþjóðlegar bókhaldsreglur framar íslensku reglunum. Það er varðandi alþjóðaflugið, þá gildir Montreal-samningurinn því að við þurfum að nota alþjóðareglur í alþjóðaflugi væntanlega, og svo er einn varðandi samningsskil. Svo segja þeir að brjóti íslensk lög í bága við EES-samninginn þá geti einstaklingar fengið skaðabætur, eigi skaðabótarétt, og þá geta íslenskir ríkisborgarar farið í skaðabótamál. Það er nákvæmlega það sama og er hægt í Evrópu. Frægasti dómur í þessum málum er Francovich-málið frá Ítalíu. (Forseti hringir.) Þar sótti einstaklingur skaðabætur til ítalska ríkisins af því að innleiðing á tilskipun var ekki rétt. Þetta er sá mekanismi, (Forseti hringir.) það kerfi sem við erum með eftir 30 ár og við eigum að halda því áfram. (Forseti hringir.) Ef það er mikið af svona málum þá sýnir það bara það að íslensk stjórnvöld eru ekki að standa sig varðandi innleiðingar á gerðum og að fylgja EES-samningnum.

(Forseti (OH): Forseti minnir hv. þingmann á gæta að ræðutímanum.)