154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[16:08]
Horfa

Elín Íris Fanndal (Flf):

Virðulegur forseti. Við ræðum hér við 3. umræðu frumvarp hæstv. háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna. Markmið frumvarpsins er eins og heiti þess gefur til kynna að fella niður hindranir sem kunna að vera á frjálsu flæði ópersónugreinanlegra gagna milli Íslands og annarra EES-ríkja. Frumvarpið er ekki mjög langt og telur sjö lagagreinar. Það er vegna þess að hér er um innleiðingu EES-laga með svokallaðri tilvísunaraðferð að ræða.

Ég staldra fyrst við hugtakið ópersónugreinanlegt og vildi fara aðeins nánar út í hvað það merkir. Eins og fram kemur í 1. tölulið 3. gr. frumvarpsins er það hugtak í raun gagnályktun frá persónuupplýsingum. Forskeytið ó- í orðinu ópersónugreinanlegt gerir það að verkum, þ.e. ef einhver gögn hafa að geyma persónuupplýsingar falla þau ekki undir það frumvarp sem hér um ræðir. Enn fremur kemur fram í athugasemdum við 3. gr. frumvarpsins að upplýsingar sem mögulegt er að gera persónugreinanlegar með viðbótarupplýsingum teljist einnig persónuupplýsingar og falli þar af leiðandi ekki undir þetta frumvarp. Um þetta atriði vísar greinargerð frumvarpsins til leiðbeinandi upplýsinga framkvæmdastjórnar ESB um samspilið á milli þeirra reglugerða sem þetta frumvarp byggir á og reglugerðar ESB nr. 2016/679 sem oft er nefnd GDPR eða persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins.

Ég geri ráð fyrir að þessi umfjöllun um ópersónugreinanleg gögn sem hægt er að umbreyta í persónugreinanleg gögn eigi við um gögn sem hafa verið dulkóðuð með einhverjum hætti, eða e.t.v. hluti gagnanna afmáður persónugreinanlegum upplýsingum sem þá er hægt að fylla inn í gögnin aftur með einhverjum aðgerðum. Það er gott og vel að sjá að hugsað hafi verið til takmarkaðra tilvika eins og þessara. Jafnframt má hugsa sér að þessi tilgreining gagnist einnig þegar við horfum til gagna sem hafa verið bútuð niður með einhverjum hætti og teljast ekki lengur persónugreinanleg en munu innihalda persónuupplýsingar verði þau sett saman að nýju.

Aftur að öðrum þáttum þessa frumvarps. Fjallað er um að fella niður hindranir sem kunna að standa í vegi fyrir frjálsu flæði gagna innan EES-ríkjanna en gögn falla þá væntanlega undir þann þátt fjórfrelsisins sem lýtur að frjálsu flæði vara milli landa. Þegar ég veitti þessu máli fyrst athygli verð ég að viðurkenna að ég áttaði mig ekki á því að til staðar væru hindranir sem kæmu í veg fyrir að við færðum gögn til annarra EES-ríkja. Ég taldi því ástæðu til að fjalla um þennan þátt nánar með tilliti til þess hvort það sé í raun nauðsynlegt að lögfesta þetta frumvarp til að tryggja þennan þátt fjórfrelsisins.

Það er aðeins tekið á þessum þætti í umfjöllun við 2. tölulið 3. gr. í athugasemdum við frumvarpið. Þar er m.a. bent á að í lögum um bókhald sé gerð krafa um að bókhaldsbækur skulu vera til staðar hér á landi. Það er reyndar dálítið undarlegt að lesa 2. tölulið 3. gr. sem skilgreinir kröfu um staðsetningu gagna sem einhvers konar kröfu sem áskilur að vinnsla gagna skuli fara fram í tilteknu landi. Maður hefði einmitt haldið að málið snerist aðallega um að ekki mætti gera kröfu um að geyma þyrfti gögn í tilteknu aðildarríki eins og virðist gilda um bókhaldsgögn. Þá kemur í ljós þegar lesið er yfir 3. tölulið 3. gr. að hann skilgreinir nánar hugtakið vinnslu þannig að hugtakið nái m.a. yfir varðveislu gagna. Þessi skilgreining í 3. tölulið er reyndar dálítið fyndin og mjög svo Evrópusambandsleg, ef svo má að orði komast, því að þar er þetta að maður hefði haldið auðskiljanlega hugtak, vinnsla, skilgreint á eftirfarandi hátt:

„Aðgerð eða röð aðgerða þar sem unnið er með gögn eða gagnamengi á rafrænu formi, hvort sem vinnslan er sjálfvirk eða ekki, svo sem söfnun, skráning, flokkun, kerfisbinding, varðveisla, aðlögun eða breyting, heimt, skoðun, notkun, miðlun um framsendingu, dreifing eða aðrar aðferðir til að gera upplýsingarnar tiltækar, samtenging eða samkeyrsla, aðgangstakmörkun, eyðing eða eyðilegging.“

Ég hefði ekki getað ímyndað mér annað eins orðasalat til að útskýra jafn einfalt orð og vinnslu, en þetta kann að gerast þegar lögfræðingar fá aðeins of mikinn tíma til að hugsa út í allt hvað eina sem gæti þurft að taka fram. Einhver sagði jú að þegar verkfræðingur er beðinn um að búa til verksamning þá setur hann í samninginn aðeins þau atriði sem málið varða, svo sem hvaða verk samningurinn fjallar um, hvenær verkið skuli unnið og hvað skuli greiða fyrir verkið, en þegar lögfræðingur er beðinn um að búa til samning þá telur hann upp allt annað, allt það sem verktaki á ekki að gera og tiltekur svo að samningurinn fjalli um hið gagnstæða.

Aftur að fjórfrelsinu. Eins og fyrr segir er þessu frumvarpi ætlað að afnema hindranir sem kunna að standa í vegi fyrir frjálsu flæði ópersónugreinanlegra upplýsinga milli EES-ríkja. Því vekur furðu að ekki sé lögð til í þessu frumvarpi breyting á þeirri grein bókhaldslaga sem vísað er til í umfjöllun um 3. gr. frumvarpsins og kveður á um að bókhaldsbækur skuli vera til staðar hér á landi. Maður myndi halda að það væri einmitt tilgangur þess frumvarps að afnema slíka hindrun. Því væri nærtækast að bæta við frumvarpið lagagrein sem fellir brott þessa kröfu um staðsetningu gagna úr lögum um bókhald, sem er í dag að finna í 1. mgr. 10. gr. A þeirra laga. Þannig finnst mér skjóta skökku við að háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið hafi þegar kannað hvort til staðar séu einhverjar hindranir af því tagi sem frumvarpinu er ætlað að fella brott, hafi jafnframt komist að þeirri niðurstöðu að í íslenskum lögum sé að finna eina slíka hindrun en telji engu að síður ekki þörf á að fella hana brott. Mögulega kann skýringin að vera sú að lög um bókhald heyra ekki undir háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneytið heldur menningar- og viðskiptaráðuneytið og að hefðir um að ráðuneyti stígi ekki inn á verksvið hvers annars valdi því að hér sé ekki gengið beint til verksins. Mögulega er skýringin sú að samkvæmt einhverri nánari athugun sé staðsetningarkrafa bókhaldslaganna ekki þess eðlis að það þurfi að afnema hana til að uppfylla kröfur reglugerðar ESB nr. 2018/1807. Ég skal ekki segja. Kannski geta aðrir þingmenn sem betur þekkja til málsins útskýrt þennan þátt betur fyrir mér í andsvörum.

Herra forseti. Aðeins um feril þessa máls. Um árabil var viðvarandi svokallaður innleiðingarhalli, þ.e. Ísland hafði skuldbundið sig til að innleiða fjölda EES-gerða í landslög en sökum ýmissa aðstæðna höfðu málin hrannast upp og ekki hafði tekist að innleiða gerðir með viðeigandi hraða. Þannig var Alþingi oft að fjalla um frumvörp um innleiðingu gerða sem hefði með réttu átt að innleiða mörgum árum fyrr. Sennilega má rekja innleiðingarhallann að hluta til þeirra fjölmörgu og erfiðu mála sem Alþingi þurfti að fjalla um í kjölfar efnahagshrunsins. Þau mál kröfðust mikillar og vandaðrar umfjöllunar og því gafst minni tími til að fjalla um ópólitísku málin, ef svo má að orði komast, um innleiðingu EES-gerða sem kannski vörðuðu mjög sérhæfð starfssvið víðs vegar um samfélagið eða, eins og í tilviki þessarar ESB-reglugerðar, fjölluðu um afnám hindrana sem vart fyrirfinnast í íslenskri löggjöf. Þau mál voru því aftarlega í forgangsröðun þingsins og hlutu því oft ekki afgreiðslu. Til að vinna niður innleiðingarhallann var ráðist í átak innan ráðuneytanna, íslenskrar stjórnsýslu og þingsins. Það verkefni hefur eftir því sem ég best veit gengið ágætlega og hér höfum við sem dæmi til umfjöllunar innleiðingu reglugerðar sem fjallað var um af sameiginlegu EES-nefndinni síðasta haust. Það er sem sagt minna en ár frá því að ákveðið var að innleiða reglugerðina í EES-samninginn og hún er strax komin jafn langt og raun ber vitni í gegnum ferlið. Ég held að við getum hrósað íslenskri stjórnsýslu fyrir árangurinn í þessu átaki.

En svo er það spurningin: Var ekki bara hægt að innleiða þessa reglugerð með þeirri einu lagabreytingu að kveða á um að hún væri innleidd og að áðurnefnd staðsetningarregla bókhaldslaga félli úr gildi? Þurfti málið að vera þetta flókið? Þurfti þessa ítarlegu skilgreiningu á vinnslu sem ég þuldi hér upp áðan? Ég held nefnilega að við séum oft að sækja vatnið yfir lækinn þegar við innleiðum svona gerðir. Við eigum bara að afnema hindranir, ekki lögfesta óþarfar reglur um alls konar skilgreiningar. Eins og dæmin sýna er umfjöllun þingsins um mál sem þessi oft rýr og jafnvel er áhugi samfélagsins lítill. Efnahags- og viðskiptanefnd óskaði til að mynda eftir umsögnum frá sjö aðilum um þetta mál, þ.e. Neytendastofu, Persónuvernd, ríkislögreglustjóra, Samtökum gagnaversfyrirtækja, Samtökum iðnaðarins, Samtökum upplýsingatæknifyrirtækja og Skattinum. Enginn þessara aðila taldi tilefni til að senda inn umsögn um málið. Eflaust má túlka það sem svo að það sé vegna þess að enginn þeirra telji nokkuð athugavert við frumvarpið en hugsanlega er hér um að ræða tilvik sem ég held að sé nokkuð algengt, þ.e. að aðilar þeir sem fengu sendar umsagnarbeiðnir hafi einfaldlega ekki tíma til að rita umsagnir um öll þau mál sem óskað er eftir áliti þeirra á og verða því að forgangsraða. Þá vekur það athygli mína í ljósi þeirrar umfjöllunar sem fram kemur í greinargerð málsins um kröfu um staðsetningu bókhaldsgagna hér á landi að ekki hafi verið óskað eftir umsögnum frá þeim starfsstéttum sem starfa eftir þeim lögum, þ.e. bókurum og endurskoðendum. Í ljósi þess að Skatturinn, sem hefur eftirlit með lögum um bókhald, taldi ekki tilefni til að senda inn umsögn hugsa ég þó að það komi ekki að sök að ekki hafi verið óskað eftir umsögn þessara starfsstétta.

Að lokum, herra forseti, vil ég þakka fyrir góða umræðu í þessu máli. Það er mjög svo mikilvægt að innleiðingarmál sem þessi fái efnislega umfjöllun þingmanna.