frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir spurninguna og andsvarið. Ég segi það hér og nú að það er fátt sem stendur því í vegi miðað við eðli þessarar reglugerðar að notuð sé tilvísunaraðferð umfram umritunaraðferðina, sem líka er yfirleitt gert þegar við erum að ræða innleiðingu tilskipana. Það segi ég vegna þess að hér er um að ræða reglugerð. Hins vegar skrifa ég það á — það er stórt orð að nota áhugaleysi um að búa til einhverja stóra stefnumótun í kringum þessa innleiðingu með sama hætti og gert var við innleiðingu persónuverndarlöggjafarinnar í íslenskan rétt. Þá fór fram umfangsmeiri og metnaðarfyllri stefnumótun sem hefur síðan í reynd ekki verið fylgt eftir í samræmi við það í pólitískri stefnumótun stjórnvalda við að búa til t.d. menntakerfi sem nýtur ákveðinna sérsjónarmiða. Það skýrist auðvitað líka af áherslum eftirlitsstjórnvaldsins í þessu. Það er síðan önnur umræða og ef einhver leitar að andsvari þá er ég til í það. Ég ætla hins vegar ekkert að finna að þessu. Ég hef engar forsendur til þess, ekki nokkrar.