154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[16:39]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil leyfa mér að vera ósammála hv. þingmanni. Ég tel að það skipti mjög miklu máli hvað varðar lagatextann að ekki sé bara verið að velja það sem framkvæmdarvaldið telur vera kjarnaákvæði til kynningar fyrir almenningi í íslensku lögunum og svo sé raunverulega bara vísað til reglugerðar Evrópusambandsins. Ég get tekið dæmi, t.d. varðandi orðskýringarnar í 3. gr. Þar eru þrjár orðskýringar. Í skilgreiningargrein reglugerðarinnar sjálfrar eru átta skilgreiningar á orðum. Í frumvarpinu sem við erum með til umræðu, um frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna, er t.d. krafa um staðsetningu gagna en í reglugerðinni sjálfri er skilgreining á kröfu um staðbindingu gagna. Þegar svona misræmi er fer maður að velta fyrir sér hvort átt sé við sama hlutinn. Er staðbinding það sama og staðsetning? (Forseti hringir.) Með staðbindingu er verið að binda eitthvað niður á staðinn en staðsetning er annað. Það er svona misræmi sem kemur upp þegar þetta er á tveimur stöðum.