frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni aftur fyrir þessa ábendingu. Ég vil taka fram að eitt er að nota tilvísunaraðferðina en það hindrar okkur ekki í því að búa til skilgreiningar í tengslum við einstök ákvæði. Ég held að það sé bara lagatækni og innleiðingartækni sem megi vinna betur í lögskýringargögnum hverju sinni. Hins vegar finnst mér, úr því að við erum á þessum slóðum, nauðsynlegt og það hefði verið svo gott að nota þá fimm, sex ára reynslu sem komin er á tilskipunina erlendis til að gera okkur grein fyrir því hver helstu álitaefnin eru. Og það reyndi ég að rýna í í aðdraganda þessarar umræðu, t.d hvað almannaöryggi er. Hvað er almannaöryggi? Hér megum við staðbinda vistun gagna hér á landi í þágu almannaöryggis, og það er vítt hugtak. Nota bene þá er ekki lagalegur „konsensus“ hér á landi um t.d. það hvað teljast vera almannahagsmunir hjá Persónuvernd. Það er ekki gott.