frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni fyrir ræðu sína. Ég hjó eftir því að hún nefndi þennan innleiðingarhalla okkar, hversu illa við stæðum okkur hvað innleiðingar gerða varðaði. Hún nefndi Norðmenn og hvort við ættum að taka upp norsku aðferðina. Ég held satt best að segja að Norðmenn séu kaþólskari en páfinn hvað innleiðingar varðar og standa sig oft miklu betur en Evrópusambandsríkin sjálf. Höfum við sem samfélag möguleika til að gera þetta eins og milljónasamfélag, að fara í gegnum allar þessar gerðir þegar við tökum við þeim, lesa þær og greina? Ráðum við bara við það sem samfélag að standa okkur á sama hátt og milljónaríki eins og Noregur sem er, eins og hv. þingmaður nefndi, hreinlega í lobbíisma í Brussel þegar verið er að vinna að slíkum reglusetningum? Ég þekki það ágætlega úr mínu starfi sem þátttakandi í verkalýðshreyfingunni hvað Norðmenn voru yfir höfuð mjög duglegir að sinna þessu sem ég gat ekki á nokkurn hátt merkt að við værum að sama skapi uppi á Íslandi. Mig langar aðeins að fá vangaveltur um það hvort við höfum yfir höfuð möguleika á því að gera þetta á sama hátt og Norðmenn.