frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og fyrir að vekja máls á þessu. Ég ætla að koma því á framfæri að innleiðingarhalli er eitt. Hann kemur til þegar við fáum tilbúna löggjöf til innleiðingar og þar er fyrst og fremst um innlenda stjórnsýslu að ræða. Ráðuneytin eru auðvitað með þann bolta í fanginu. Hér vil ég öðru fremur vekja athygli á því að úti í Brussel eru líka verkefni fyrir okkur að vinna. Það er kannski umfram allt það sem ég er að nefna í þessu. Þar standa Norðmenn sig alveg einstaklega vel og ég ætla ekki að draga fjöður yfir það að milljónaþjóðin hefur auðvitað fordæmalausa getu til þess að búa vel um sína diplómata í formi fjármögnunar sem er ekki í nokkru samræmi við það sem við höfum yfir að búa. Ég held samt að mikilvægt sé að gera aðeins betur.
Hér verð ég líka að segja að sjálfstæð hagsmunasamtök á Íslandi verða sömuleiðis að taka til sín mínar ábendingar um þetta. Mér fyndist t.d. mjög eðlilegt að stórir geirar væru með fulltrúa sinn úti til að halda uppi heiðri íslenskra atvinnuvega. Hér nefni ég sjávarútveginn og landbúnaðinn. Það væri mjög eðlilegt en fókusinn er ekki alveg þar. Við erum með mjög flotta sendiskrifstofu á vegum Sambands sveitarfélaga t.d., sem stendur sig mjög vel, en betur má ef duga skal. Ég tala nú ekki um ef vilji stendur til að gerast einn góðan veðurdag aðili að Evrópusambandinu. Um það er kannski ekki nógu rík sátt akkúrat núna en hlutir geta breyst. Við eigum því aldeilis ekki að kasta inn handklæðinu fyrir fram í þessu. Við getum gert svo miklu betur.