frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Já, við stöndum okkur ágætlega á ýmsum sviðum. Eins og hv. þingmaður nefndi hefur Samband íslenskra sveitarfélaga verið að standa sig afburðavel á þessum vettvangi og verið með fulltrúa til þess að sinna þessu.
Ég heyrði það oft í orðræðunni þegar ég starfaði á vettvangi verkalýðshreyfingarinnar að Norðmenn væru stundum að gefast upp á þessum samningi um Evrópska efnahagssvæðið. Þeir væru að draga vagninn, hin löndin nytu góðs af því og þeir myndu hreinlega vilja gera beina samninga við ESB. Eins og maður hefur heyrt í orðræðunni undanfarna mánuði eru Norðmenn farnir að tala um að þeir séu of lítil þjóð til að standa utan samnings. Þá veltir maður fyrir sér: Hvað verður t.d. um örríki eins og Ísland hvað varðar þennan samning ef Norðmenn myndu taka ákvörðun um að ganga inn?