154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[16:47]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir mjög áleitna spurningu. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem ég heyri þessa spurningu. Hvað gerist ef Norðmenn ýmist taka svissnesku leiðina á þetta og gera tvíhliða samning eða hreinlega ganga til liðs við Evrópusambandið sem fullgilt aðildarríki? Ég hef ekki svörin við því en eitt er hins vegar alveg á hreinu og tek ég undir með hv. þingmanni að það er miklu meiri vinna að standa fyrir aftan borðið og eiga ekki sæti við það. Það er bagalegt að sitja á fundum sem fulltrúi EES-ríkis. Ég hef gert það í Brussel sem fulltrúi Íslands við hlið norska aðilans. Þegar greidd eru atkvæði um atriði í nefndum sem fara með drög að tilskipunum og fleiru þá ganga Íslendingar og Norðmenn út. (Forseti hringir.) Það þykir mér óákjósanlegt.