154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[16:51]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni kærlega fyrir góða ábendingu í tengslum við þetta. Það er auðvitað kjarninn í þessu. Ég geri ráð fyrir að þessi aðstaða geti skapast þegar við erum með fyrirspurn þar sem ég hreinlega spyr gervigreindina um eitthvert heilsufarsvandamál sem er að plaga mig og er svolítið nákvæm, svo fer ég til læknis og læknirinn spyr gervigreindina líka vegna þess að hann rekur í vörðurnar með þetta og þá eru góðar líkur á því að gervigreindin sé komin með prófíl um mig eftir þetta. Hvort þetta sé að fara að gerast mikið veit ég ekki en við skulum ekki vanmeta gervigreindina. Hins vegar vil ég taka fram að vinnsluheimildin í þessu er samþykkið. En ég ætla bara að endurtaka það sem ég sagði áðan: Íslenska ríkið hefur ekki mótað sér neina stefnu um það hver viljinn er til að nota skýjaþjónustur í þeim tilgangi að reyna að lágmarka vinnslu persónugreinanlegra gagna og að virða þá flutningsmekanisma sem eru lögmætir hverju sinni. Maður les skýjastefnu ríkisins og nú vil ég ekki gera lítið úr neinum en hún er nokkuð rýr og það er ekki eins og við séum að ræða oft þessi málefni hér í þingsal. Þetta þykir nú vera frekar svona aukapólitík, þetta þykir ekki snerta á stóru straumunum sem varða fólk um næstu mánaðamót. En þetta er samt mjög „relevant“ og þess vegna finnst mér við alveg mega gera ríkari kröfu til stjórnvalda vegna þess að þetta sinnuleysi er að skapa vandamál.