frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það má geta þess að í gervigreindarstefnu Evrópusambandsins sem samþykkt var, held ég, bara í síðustu viku, hún fór í gegnum Evrópuráðið, þá eru ýmsar takmarkanir settar við því að nota gervigreindina til þess að færa ópersónugreinanleg gögn yfir í að verða greinanleg. En af því að hér á undan var hv. þingmaður spurður um Evrópusambandið og hér á undan spurði ég hv. þm. Eyjólf Ármannsson um bókun 35 þá langaði mig í seinna andsvari að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að það sé kannski kominn tími til þess að við göngum í Evrópusambandið og í öðru lagi hvort hv. þingmaður telji að við þurfum að drífa okkur í að samþykkja bókun 35. Örstuttar spurningar.