frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir léttar spurningar á miðvikudegi. Varðandi það hvort það sé ekki tími til að drífa sig í Evrópusambandið þá hefur sá tími komið og hann hefur líka farið. Ég er hins vegar þeirrar skoðunar að það sé alltaf rétti tíminn til að fara og berjast fyrir íslenskum hagsmunum. En það er ekki hægt að gera það nema í góðri og ríkri sátt við helstu hagsmunaaðila og ég get kannski komið að því síðar. Ég er einlægur Evrópusinni en þessari ríkisstjórn verður ekki falið það verkefni. Það er stutta svarið. Varðandi bókun 35 þá tel ég að það sé rétt að samþykkja hana. Ég mun ekki leggjast gegn því. Mér fyndist það vera bagalegt ef við gerðum það því að hagsmunir íslenskra ríkisborgara eru undir sem og annarra sem verða fyrir því að evrópsk löggjöf er ekki innleidd hér með þeim hætti sem samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið mælir fyrir um.