frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Forseti. Eins og hefur komið hérna nokkrum sinnum fram þá er þetta mál sannarlega stærra en kannski virðist við fyrstu sýn. Málið er stutt og lætur ekki mikið yfir sér en það segir hins vegar heilmargt og eins og við höfum séð í þessari umræðu þá vekur það umræðu um fjölmarga tengda þætti. Það sem kannski einmitt vekur athygli fólks við þetta mál er að það skuli ekki berast neinar umsagnir um það, hvorki þegar það er birt í samráðsgátt né í meðförum málsins hér á Alþingi. Það kemur sennilega til af tveimur ástæðum. Annars vegar er málið tæknilegs eðlis, sérstaklega texti frumvarpsins, og kannski gefur ekki augaleið við lesturinn beinlínis um hvað er verið að tala. Ég held reyndar að það séu þrjár ástæður fyrir því að það eru fáar umsagnir. Önnur ástæða er, eins og hefur verið bent á, að þegar við erum að ræða mál sem snúast um svokallaðar hreinar innleiðingar reglna og tilskipana frá Evrópusambandinu í gegnum EES-samninginn þá er tilfinningin sú hjá mörgum, held ég, bæði hér á þingi og víðar, að það sé kannski ekki í okkar höndum að vasast mikið í málinu, hvorki með því að gera breytingar eða í rauninni að stoppa það eða eitthvað slíkt. Breytingar sem við myndum vilja gera á málinu eða einhvers konar andstaða við það þyrfti vitanlega að koma fram fyrst og fremst á fyrri stigum. Síðan held ég að þriðja ástæðan fyrir því að það bárust ekki margar umsagnir um þetta mál sé sú að það hefur ekki gríðarlega mikil áhrif á íslenskan rétt þrátt fyrir að það megi kannski leiða líkur að því að það muni auðvelda íslenskum stjórnvöldum og fyrirtækjum og öðrum aðilum að nálgast gögn frá öðrum ríkjum þannig að áhrifin sem þetta frumvarp hefur hér á landi eru kannski minni en af reglugerðinni sem slíkri, hafandi tekið gildi í öðrum ríkjum.
Ég ætla að gera enn eina tilraunina til að orða þetta mál á mannamáli. Það hefur reyndar mörgum hér tekist ágætlega upp við það en sú umræða vill auðvitað alltaf flækjast þar sem tæknilegi þátturinn á bak við þetta er sannarlega flókinn, þetta er líka akkúrat umræða um fyrirkomulag innleiðingar og annað slíkt og ég tala nú ekki um að ef við förum út í umræður um það hvort Ísland eigi að fá atkvæðisrétt á þingi Evrópusambandsins eða eitthvað slíkt þá verður umræðan flóknari.
En til að gera langa sögu stutta í þessari stuttu ræðu sem ég hef núna þá er þetta mál ákaflega einfalt í rauninni. Það snýst um það að ríkjum er óheimilt að leggja þá skyldu á eða setja það skilyrði fyrir afhendingu gagna til annars, til einhvers aðila sem krefst gagnanna á einhverjum öðrum grundvelli sem hefur ekkert með málið að gera, á þeim forsendum einum að gögnin séu staðsett í öðru ríki. Það að staðsetning gagnanna sé forsenda ástæðu synjunar um afhendingu gagnanna er sem sagt bannað. Eina undantekningin sem er heimiluð á þessari nokkuð skýru reglu er ef almannahagsmunir, í rauninni þjóðarhagsmunir krefjast þess. Nú man ég ekki hvernig það er orðað í frumvarpinu, ég er ekki með það fyrir framan mig, en það er í rauninni eingöngu það sem um er að ræða, t.d. eitthvað sem tengist utanríkismálum eða annað slíkt. Þá þarf sömuleiðis að gæta meðalhófs. Já, ég er búin að finna þetta, það er hreinlega talað um almannaöryggi. Það er sannarlega lágur þröskuldur fyrir afhendingu gagna, hár þröskuldur fyrir undanþágu frá þessu banni við því að setja þetta skilyrði. Ef um almannaöryggi ríkisins er að ræða þá geta stjórnvöld eða ríki notað staðsetningu sem rök fyrir því að gögnin verði ekki afhent og þau þurfa að vera staðsett í þessu ríki frekar en öðru en jafnvel þá (Forseti hringir.) þarf það að vera rökstutt og það þarf að gæta meðalhófs.