frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og hún kom inn á mjög áhugaverð atriði eins og t.d. að það bárust engar umsagnir um málið og kom með ákveðnar ástæður fyrir því. En ég tel hins vegar að málið sé þannig vaxið að það hafi ekki verið kynnt nægjanlega fyrir hagsmunaaðilum, t.d. fyrirtækjum í nýsköpunargeiranum og ég tala nú ekki um innan Samtaka atvinnulífsins og Samtaka iðnaðarins. Ef við horfum á muninn á þessu og almennu persónuverndarreglugerðinni sem var innleidd með lagabreytingu á persónuverndarlögum þá var ákveðinn tímafrestur á gildistöku þar, sem var 25. maí 2018, og þá einfaldlega urðu öll fyrirtækin að vera búin að lögfesta og innleiða regluna, annars áttu þau á hættu að fá gríðarlega háar sektir sem gátu numið allt að 4% af veltu. Hér á þetta ekkert við og þetta er náttúrlega ástæðan fyrir að þetta regluverk, sem er ein af grunnstoðum stafræna innri markaðarins á Evrópska efnahagssvæðinu innan ESB, kemur svo miklu seinna. Ópersónugreinanleg gögn eru bara hrá iðnaðarvara eiginlega, alla vega í vinnslu, það er enginn að hafa áhyggjur af persónuverndarmálum eða stjórnarskrárákvæðum um friðhelgi einkalífsins eða mannréttindaákvæðum hvað það varðar heldur fer þetta bara beint í geymslu og beint í vinnslu á hvaða hátt sem er. En það er kannski minna hægt að græða á þeim. Varan í dag í þessum upplýsingaheimi er jú einstaklingarnir sjálfir sem er hægt að selja til auglýsenda eins og Facebook og Google og hvers sem er.
Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að ástæðan fyrir því hvað þetta hefur hlotið litla umræðu í samfélaginu og í umsögnum og meðferð í nefnd sé vegna kynningar og (Forseti hringir.) hvort hún sé sammála því að mikilvægi frumvarpsins stendur þrátt fyrir að við séum ekki að sýna því nægilega mikinn áhuga nema hér í þingsal í 3. umræðu. (Forseti hringir.) Þetta er grundvallaratriði fyrir gagnahagkerfið í Evrópu.