154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:07]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég er á því að þetta sé þannig mál að við séum einfaldlega ekki komin nægilega mikið inn í þennan heim, þ.e. að þróa okkar gagnahagkerfi. Ég efast um að við séum með gagnahagkerfi. Jú, vissulega erum við gagnahagkerfi ef við tölum um það að við erum með eitt gagnaver fyrir utan Blönduós og svo erum við sjálfsögðu með geymslur í Þjóðskjalasafni og annars staðar þar sem við geymum gögn en við erum ekki með þetta sem einhvern stóran hluta hagkerfisins sem það mun verða í framtíðinni og, eins og segir í inngangi reglugerðar ESB, er grundvöllur allra nútímalegra og nýskapandi hagkerfa og samfélaga. Við erum ekki alveg komin þangað. Og þó að við höldum oft að við séum best í heimi og fremst í heimi og séum fljót að kaupa nýjan iPhone og svoleiðis þá hefur sagan sýnt okkur það að við erum oft mörgum árum á eftir og það hefur verið þannig árhundruðum saman. Hér voru franskir sjómenn að veiða á skútum í nokkur árhundruð. Á sama tíma voru Íslendingar á árabátum. Frönsku sjómennirnir skildu aldrei af hverju Íslendingar væru ekki líka að veiða á skútu. Vélbátabyltingin byrjaði ekki hér fyrr en 1904, þá var löngu byrjað að sigla á vélbátum úti í Evrópu og annars staðar í heiminum. Núna erum við að horfa upp á það að við ætlum að innleiða löggjöf með þessum hætti hér sem lýtur að upplýsingabyltingunni með þessari blessuðu tilvísunaraðferð og við erum meira að segja með mismunandi setningar; í reglugerðinni er talað um kröfu um staðbindingu gagna, það er notað hugtakið staðbinding gagna í reglugerðinni, og svo erum við með hugtakið staðsetning gagna í frumvarpinu, um nákvæmlega sömu skilgreiningu eiginlega, en það vita það allir að það er munur á staðbindingu og staðsetningu. Ef þú bindur eitthvað við einhvern stað þá ertu ekki að staðsetja það, það er tvennt ólíkt.

Mig langar að spyrja hv. þingmann hvort hún telji að þessi tilvísunaraðferð sé nægilega góð, hvort við hefðum ekki a.m.k. átt að nota þá aðferðafræði sem var notuð við innleiðingu á almennu persónuverndarreglugerð Evrópusambandsins, (Forseti hringir.) að hafa a.m.k. þýðinguna sem fylgiskjal sem er þá hluti af lögunum en ekki að nota bara þessa tilvísunaraðferð sem gæti valdið misræmi og misskilningi.