frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Forseti. Ég tel fyrst og fremst að það sé mikilvægt að vanda orðalag og skilgreiningu hugtaka þegar verið er að vinna löggjöf. Auðvitað eigum við alltaf að miða að því að lög og allur texti og öll orð sem við látum frá okkur séu skýr og skiljanleg og það er auðvitað grundvallaratriði í okkar kerfi og okkar menningu og hugmyndafræði að lög séu aðgengileg öllum. Það sem gerist þarna og hv. þingmaður er kannski að benda á, sem ég held að sé ástæðan fyrir þessu misræmi í orðanotkun — og ég held það ekkert, það kemur fram í greinargerðinni — er að það er verið að reyna að einfalda orðalagið og gera það skiljanlegra. Ég hef svo sem ekki rýnt þetta frá sjónarhorni notenda með þeim hætti að ég geti sagt fyrir víst hvort þessi ólíka orðanotkun komi að sök. En mér finnst það nú alveg líklegt þegar ég ímynda mér að þetta fari í hendurnar á lögfræðingum sem fara að velta fyrir sér hvers vegna það er ekki notað sama orðið. Það gætu alveg komið einhverjar flækjur út úr því sem getur vel verið að séu óþarfar. Ég er ekki búin að rýna þetta tiltekna atriði sérstaklega en ég deili áhyggjum þingmannsins af því að það sé kannski af óþörfum ástæðum verið að einfalda orðalag eða stytta þetta einhvern veginn, setja í styttri búning til að gera þetta aðgengilegra eða einfaldara eða mögulega vegna þess að stjórnvöld telja að þetta muni ekki hafa mikil áhrif, eitthvað svoleiðis spili inn í. Það verður svolítið að koma í ljós. Ég hefði gjarnan viljað, sérstaklega þegar við erum með eitthvað sem er tæknilegt og í rauninni enn fremur ef það hefur lítil áhrif á innlenda löggjöf, að orðalagið sé bara tekið eins og það er. Þá eru kannski notaðar (Forseti hringir.) aðrar leiðir til þess að útskýra það þannig að öll í okkar góða samfélagi geti skilið hvað er verið að gera þarna. Ég deili þessum áhyggjum með þingmanninum og þakka (Forseti hringir.) hv. þingmanni fyrir að vekja athygli á þessu sem hann er að gera hérna og ekki í fyrsta skipti í þessari umræðu.