154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:17]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir þessa ræðu. Ég hugsa að ég sé ekki endilega skoðanasystir hans hvað varðar þetta embætti sem hann greinir frá, þ.e. þingsályktunartillögu Pírata fyrir einhverjum árum síðan um stofnun þessa embættis og verð að viðurkenna að ég hafði ekki heyrt af henni fyrr, enda var ég ekki á þingi þegar hún var lögð fram. Þegar hann ræðir um þessa þingsályktunartillögu kom mér til hugar að hafa verið á norrænni ráðstefnu lögfræðinga þar sem var m.a. verið að ræða netöryggismál og stöðu þeirra í norrænu samhengi. Þar fannst mér áhugavert, af því að Norðurlöndin tala gjarnan um sig sem frumkvöðla, t.d. í samhengi við útbreiðslu netsins, netnotkun og netskilning hjá almenningi og stjórnvöldum, að þar steig á svið maður sem benti á að staða Norðurlandanna og ekki síst Íslands væri veikari einmitt í því samhengi að við vorum — nú ætla ég ekki að tala eins og internetið sé nýr hlutur, en þegar netnotkun almennings var ekki alveg útbreidd voru Íslendingar sannarlega leiðandi, við vorum hvað fyrst og netnotkun varð útbreiddari en að öryggisþátturinn hefði ekki fylgt eftir sem væri ekki bara vandamál almennings heldur fyrirtækja, atvinnulífs og stofnana og við værum dálítið barnaleg hvað hætturnar þar varðar. (Forseti hringir.) Þetta datt mér í hug þegar þingmaðurinn nefndi stofnun þessa embættis því að ég gef mér að það myndi líka hafa eitthvert hlutverk í fræðslu og að auka skilning.