frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Frú forseti. Ég skil alveg efasemdir hv. þingmanns varðandi nýtt embætti ef við hugsum það sem nýja stofnun. En kannski þurfum við að vera aðeins meira skapandi þegar kemur að því hvernig stjórnkerfið okkar er byggt upp. Við erum t.d. með stjórnarráðslög sem leyfa það að stofna embætti ráðherra án ráðuneytis sem getur verið dálítill flakkari. Við þekkjum úr Bandaríkjunum að þar setja forsetarnir stundum ákveðin mál hærra á dagskrá með því að skipa einhvern sem þeir kalla „czar“, rússneska heitið yfir keisara, aðila sem er kannski hýstur einhvers staðar innan einhverrar stofnunar eða ráðuneytis en hefur þetta skýra umboð til þess að leita fanga víða og hafa skoðun langt upp fyrir sílóin sem Stjórnarráðið starfar oft innan. Þetta þarf varðandi flóknu áskoranirnar sem við stöndum frammi fyrir. Svona þyrfti t.d. umhverfisráðuneytið að vera til þess að geta tekið á loftslagsmálunum. Það þyrfti að hafa skýrt umboð til þess að banka upp á og bögga hin ráðuneytin. Sílóhugsunin vinnur gegn framþróun. Gott dæmi, fyrst hv. þingmaður nefndi netöryggismálin, er CERT-IS netöryggissveitin. Hún er þannig séð sjálfstætt embætti en er hýst innan Fjarskiptastofu.
Varðandi öryggisþáttinn og það að Ísland hafi tekið sprettinn í netnotkun en netöryggi hafi orðið eftir, þá held ég að þetta sé algerlega réttmætt. Ég held að stjórnvöld hafi ekki bætt úr skák með því að innleiða auðkenningarkerfi þar sem traustasta auðkenningin sem í boði er, rafræn skilríki, (Forseti hringir.) er allt í einu orðin allra handa gagn til að komast inn á hvaða netþjónustu sem er. Stærsti öryggisþátturinn er menningarlegur, (Forseti hringir.) manneskjan sem þarf að vita hvað hún er að gera. (Forseti hringir.) Þar gegna stjórnvöld hlutverki, ekki bara varðandi fræðslu heldur líka (Forseti hringir.) varðandi uppeldið með því hvernig þau nota öryggisþættina sjálf.