154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:22]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Andrési Inga Jónssyni fyrir svarið. Við höfum áður staðið hér og rætt um það hvað málaflokkurinn fjarskipti virðist vera dálítið týndur í ráðuneyti háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og virðist mæta ákveðnum afgangi. En þegar við horfum á stóru myndina er auðvitað og eðlilega mjög vaxandi þungi í umræðu hér á landi eins og annars staðar um þjóðaröryggismál í ljósi breyttrar stöðu í Evrópu. Þá er það auðvitað glannaskapur hversu lítill gaumur er gefinn fjarskiptamálum í heild sinni. Það má ræða í samhengi við stofnun einhvers konar embættis en maður myndi vilja sjá fjarskiptin speglast í gegnum allt Stjórnarráðið, alveg eins og við höfum stundum talað um grænar áherslur. Ég hef talað fyrir því í fjárlaganefndinni að maður myndi vilja getað rakið fjárfestingar áfram þannig að við gætum séð skýrt hvar grænu fjárfestingarnar liggja. Ég er líka alltaf upptekin af fjarskiptum í samhengi við netöryggi hins almenna borgara og þá ekki síst kvenna og þess ofbeldis sem þær geta orðið fyrir — auðvitað geta allir orðið fyrir því en tölfræðin er sú sem hún er. Við höfum einhvern veginn vanrækt þetta samtal, þessa upplýsingagjöf til almennings og mér finnst það vera ákveðinn spegill, þegar maður hugsar um þetta mál sem við erum að ræðum hér — hér eru stjórnarliðar ekki — á sinnuleysi stjórnvalda gagnvart þessum málaflokki heildstætt séð. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)