154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:24]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Ég held að það segi sína sögu að við tölum um málaflokkinn fjarskipti. Málaflokkurinn fjarskipti var einhver skiptimynt þegar Stjórnarráðinu var stokkað upp í byrjun þessa kjörtímabils, ekki af málefnalegum ástæðum heldur vegna þess að það þurfti stóla undir rassa á ráðherrum til þess að stjórnarflokkarnir gætu viðhaldið einhverju jafnvægi sín á milli. Málaflokkurinn fjarskipti gefur til kynna að þetta sé miklu þrengra svið en það er í raun og veru. Við myndum aldrei tala um málaflokkinn malbik. Malbik er samt burðarþáttur í samgöngukerfinu en þar erum við með stærri málaflokk undir í því ráðuneyti sem fer með samgöngumál. Eins er með fjarskiptin. Þetta er undirlagið í þekkingarsamfélaginu í dag. Þetta er grundvöllur almannaöryggis í dag, eiginlega hvernig sem við skilgreinum það. Hv. þingmaður nefndi hvernig kerfin hafa ekki verið hönnuð til að tryggja öryggi kvenna. Það á náttúrlega allt of oft við þegar ný kerfi eru innleidd að ekki er gætt að viðkvæmum hópum. Hvað varðar aðgang að stafrænum innviðum samfélagsins mætti t.d. líka nefna fatlað fólk. Ég nefndi rafrænu skilríkin áðan sem eru allt í einu orðin aðgangurinn að öllu sem hægt er að nálgast frá hinu opinbera á netinu. Þau standa fullt af fötluðu fólki ekki til boða. Þarna gleymdi einhver einhvers staðar í ferlinu að algild hönnun snýst ekki bara um að hurðarop séu nógu breið eða að það sé snúningspláss á baðherbergisgólfinu. Hún snýst um öll kerfi samfélagsins, (Forseti hringir.) þar á meðal aðgengi að opinberum upplýsingum á netinu. Þar höfum við því miður ekki verið að standa okkur nógu vel.