154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:27]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Mig langar að þakka þeim hv. þingmönnum sem hafa tekið þátt í þessari umræðu um þetta mál. Mér hefur fundist umræðan um það vera mjög áhugaverð. Hér er um flókið en mikilvægt mál að ræða og það er von mín að þessi umræða hafi skapað aukinn skilning meðal þingmanna um það hvað við erum raunverulega að fara að greiða atkvæði um, væntanlega á morgun. Það er nefnilega dálítið oft með þau frumvörp sem koma inn sem eiga uppruna sinn í Evrópska efnahagssvæðinu eða Evrópusambandinu og koma hingað sem reglugerðir að við svona eiginlega horfum ekkert á hvað stendur þar heldur segjum bara: Þetta hlýtur að vera í lagi. Það er mikilvægt að við áttum okkur á því hvað við erum að setja lög um.

Mér finnst einnig hafa verið góð umræða um það hvernig við erum að innleiða ESB-reglugerðirnar og jafnvel mismunandi leiðir til þess. Það er mikilvægt að við séum að taka þá umræðu vegna þess, eins og ég nefndi í upphafi, að þessi reglugerð er sex ára gömul. Það er búið að taka sex ár fyrir þessa reglugerð að koma hingað inn í þingið og verða lögfest. Við lifum á tímum stafrænnar byltingar þar sem hlutirnir breytast mjög hratt og þá eru sex ár heil öld. Það sem var verið að tala um fyrir sex árum síðan á móti því sem er að gerast núna í tækni og öðru er bara tvennt ólíkt. Við verðum að finna leiðir til þess að vera ekki svona langt á eftir til þess raunverulega að skapa okkur tækifæri til að vera alvöruþátttakandi í þessum stafræna veruleika og stafræna hagkerfi sem núna er til staðar. Við Íslendingar þurfum að vera mun duglegri að taka þátt í þessu vegna þess að hagkerfi framtíðarinnar mun reiða sig svo mikið á þessa stafrænu hluti. Ef við erum með lagaumhverfi sem er langt á eftir þá gengur það ekki upp.

Hér áðan nefndi hv. þm. Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir t.d. þær hættur sem hafa skapast vegna stafræns kynferðisofbeldis. Ég átti fyrirspurn til hæstv. dómsmálaráðherra um það hvort endurskoða ætti blygðunarsemisákvæði hegningarlaga, vegna þess að við erum að sjá að það er ekki endilega að taka utan um stafrænt kynferðisofbeldi og stafrænar árásir á fólk eins og við hefðum viljað sjá það gera. Þetta er ákvæði sem hin Norðurlöndin eru annaðhvort búin eða eru að vinna að því að endurskoða vegna þess að þau vilja passa það að brot gegn einstaklingi, blygðunarsemisbrot sem framkvæmt er í gegnum stafrænan miðil sé örugglega tekið með.

Þetta er bara dæmi um það þar sem við verðum að fylgjast með hvernig þróunin er og við verðum að vera þátttakendur í þessu. Annars gerist sá einfaldi hlutur að við verðum langt á eftir, langt, langt á eftir. Þá kemur það niður á nýsköpuninni, það kemur niður á hagkerfinu okkar. Það kemur niður á því að við erum ekki með hegningarlög sem eru að fylgja þessu. Við erum ekki með lagaumhverfi hreinlega sem er tilbúið að takast á við þá stafrænu byltingu sem við lifum við.