154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:32]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Gísla Rafni Ólafssyni fyrir ræðu hans. Ég vil spyrja hv. þingmann, sem hefur meiri þekkingu á þessu sviði en ég, hvort hann telji að þetta frumvarp girði með viðhlítandi hætti fyrir það að flakkað sé með persónugreinanleg gögn út um hvippinn og hvappinn og að sú hegðun, eins og hv. þm. Dagbjört Hákonardóttir nefndi áðan, sé afsökuð með lélegri dulkóðun. Mun það verða mögulegt fyrir fyrirtæki að taka persónuleg gögn fólks sem þeim er treyst fyrir, dulkóða þau með lélegustu dulkóðun á markaðnum og flakka með gögnin um allt EES-svæðið? Er girt fyrir slíka hegðun í þessu frumvarpi?

Sporin hræða. Við lifum á svo hraðri tækniöld að það er vonlaust fyrir venjulegt fólk að átta sig á því hvað er í gangi, hvernig gögn eru varðveitt og hver er að fylgjast með hverjum. Maður þarf að vera snillingur í tölvunarfræði. Ég veit ekki hversu mikill snillingur maður þarf að vera til að geta áttað sig á því hvað er í gangi. Ef maður áttar sig á einu í dag þarf maður að átta sig á einhverju öðru á morgun.

Getur hv. þingmaður skýrt út fyrir okkur hvort einhver möguleiki sé á því að léleg dulkóðun geti valdið því að hægt sé að misnota gögn?