frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góða spurningu. Dulkóðun er eitt. Hún byggist á því að það sé mjög flókið að reikna hluti út. Þar eru að verða breytingar í tækninni sem gera það að verkum að innan tíðar verða komnar tölvur sem eru hundrað sinnum öflugri en þær sem við höfum nú. Þar af leiðandi verða þær hundrað sinnum fljótari að afkóða dulkóðun. Ég hef hins vegar meiri áhyggjur af því að nú sé orðið hægt að nýta gervigreind til að átta sig á því hvern ópersónugreinanleg gögn eigi við um.
Tökum dæmi. Segjum að til séu gögn um það hvernig símar allra Íslendinga hafi hreyfst. Þetta er hægt að gera. Það er búið að taka símanúmerin út úr gögnunum, ekkert mál. Það gerir það að verkum að ekkert er lengur persónugreinanlegt heldur höfum við bara fullt af gögnum um það að tiltekinn sími hafi komið inn á einn símasendi á þessum tíma og síðan kom hann inn á annan sendi á þessum tíma.
Það sem þú getur hins vegar gert, þótt búið sé að gera gögnin ópersónugreinanleg, er að nota gervigreind til að spá fyrir um líkur á því að bera kennsl á hreyfingar þínar. Ég veit hvar þú átt heima og ég veit að þú eyðir miklum tíma á þingi. Ef ég get sagt að það sé mynstrið sem gervigreindin á að leita að, þá getur hún fundið út hvert þú ferð að versla — allar þessar upplýsingar. (Forseti hringir.) Þetta er bannað að gera samkvæmt gervigreindarlöggjöf sem var verið að samþykkja í Evrópusambandinu. Hún kemur ekki inn á þetta borð fyrr en eftir sex ár eða svo.
(Forseti (ÁsF): Ég minni þingmanninn á að taka sér ekki lengri ræðutíma en aðrir.)