frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Það er frábært að heyra þekkingu hans á gervigreind. Hún skelfir örugglega marga. Það er búið að gera alls konar bíómyndir sem gera fólk alveg skelfingu lostið vegna þeirrar hugsunar að einhver gervigreind geti tekið völdin í framtíðinni.
Ég vil í síðara andsvari spyrja nánar út í dulkóðun almennt. Nú hefur Facebook tekið upp svokallaða „end-to-end-dulkóðun“. Getur almenningur treyst því að fyrirtæki eins og Facebook verndi persónugögn þeirra? Dugar þessi „end-to-end-dulkóðun“ við það mikilvæga verkefni að vernda gögn?
Við getum leikið okkur að því hugtaki að komast inn í gögn fólks. Ég er svo gamall að þegar ég var í sveit var símanúmerið þrjár langar og ein stutt. Ég held að ungir krakkar nú á dögum átti sig ekki einu sinni á því um hvað ég er að tala. Öll sveitin lá á hleri. Það var fyrsta dæmið um persónunjósnir. Allir gátu fylgst með. Maður hefur á tilfinningunni að þetta hafi þróast í þetta. Fyrst þetta var hægt á þessum tíma fyrir sextíu eða sjötíu árum hlýtur það að vera miklu auðveldara á þessari tækniöld að fylgjast með náunganum og kortleggja hann. Maður verður var við þetta. Ég er á Facebook. Þegar maður gúglar eitthvað dúkka upp skilaboð nokkrum sekúndum seinna: Viltu ekki þetta? Varstu að skoða þetta? Við erum ekkert varin, held ég. Það er hægt að fylgjast með okkur hverja sekúndu.