frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég man einnig eftir símanum í sveitinni. Það var gaman að hlera. Áður en Facebook og aðrir miðlar tóku upp þessa dulkóðun milli aðila var það þannig að ef þú tengdist inn á þráðlaust net á kaffihúsi var hægt að fylgjast með því sem fór þar yfir, öllum samtölum, eins og í gamla sveitasímanum. Eftir að þessi dulkóðun milli aðila kom til sögunnar, eins og í GSM-símanum okkar í dag, er ekki lengur auðvelt að hlusta. Við vitum hins vegar aldrei hver bjó til kerfið og hvort einhver hafi breytt forritum og slíku.
Gott dæmi um það er að lögregluyfirvöld í Evrópu bjuggu til forrit svo að fólk gæti talað dulkóðað fram og til baka. Þetta varð mjög vinsælt meðal glæpamanna í Evrópu. Lögreglan var bara að fylgjast með öllu sem fór þar yfir. Öll skilaboð fóru líka til lögreglunnar. Það er vonandi ekki þannig með Facebook. Ég veit að margir þingflokkar nota forritið Signal sem státar sig af því að passa upp á það að enginn aðili eigi það, ekkert land eigi það. Það skiptir máli að þessi samskipti séu þannig að það sé ekki verið að hlusta á okkur. Við viljum friðhelgi einkalífsins.