154. löggjafarþing — 117. fundur,  5. júní 2024.

frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.

912. mál
[17:41]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Vegna orða hv. þingmanns um mikilvægi þess að láta reglugerðir ekki liggja árum saman áður en þær eru teknar upp, sem hann setti í samhengi við hættu vegna samskipta á netinu, þá langaði mig að nefna að fyrsta frumvarpið sem ég lagði fram á Alþingi haustið 2020 varðaði nýja skilgreiningu á ákvæði almennra hegningarlaga sem tekur á dreifingu og útbreiðslu barnaníðsefnis.

Það gerði ég vegna þess að mér fannst við sitja eftir í norrænum samanburði varðandi það hvernig við skilgreindum það brot og einnig hvað varðar refsiramma. Með tilkomu internetsins jukust þessi brot ævintýralega að umfangi og alvarleika. Eins jákvæð og tækniþróun er og þrátt fyrir allt sem hún hefur fært okkur er það staðreynd að á henni eru dökkar hliðar. Það skiptir miklu máli varðandi framþróun tækninnar að við höfum lagasetningu sem sé tæknihlutlaus og nái utan um nýjar leiðir og nýja tækni. En það skiptir ekki síður máli, sem hv. þingmaður nefndi, að við bíðum ekki með það árum saman að innleiða réttarbætur og sitjum þá uppi með svartapétur í grundvallarmálum.