frjálst flæði ópersónugreinanlegra gagna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Ég er hjartanlega sammála hv. þingmanni um það að við megum ekki sitja uppi með svartapétur. Mig langar að nefna að í Evrópusambandinu var 19. október árið 2022 samþykkt reglugerð um stafræna þjónustu sem nefnist á ensku, með leyfi forseta, „Digital Services Act“. Hún gekk í gildi í Evrópusambandinu 17. febrúar sl. Með henni koma ákveðin skilyrði gagnvart þeim sem veita stafræna þjónustu á Evrópska efnahagssvæðinu um að stöðva ólöglega og skaðlega starfsemi á netinu og útbreiðslu falsupplýsinga og ýmislegs annars.
Þetta var samþykkt 2022. Mér er spurn: Hvenær fáum við að sjá þetta hér á landi? Miðað við hvað reglugerðin sem við erum að samþykkja hér í dag er lítil og reglugerðin um stafræna þjónustu er stór, þá verðum við heppin ef hún verður komin eftir sex ár. Þá verður mikið búið að gerast. Þá er spurning hversu margir hafa lent í skaðlegri og ólöglegri þjónustu á netinu og geta ekki leitað réttar síns af því að við höfðum ekki enn innleitt þessa tilskipun. Þetta er eitthvað sem við þurfum virkilega að hafa í huga.